Skiptinemastarf Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar

fimmtudagur, 1. júlí 1982

JPH

Einn áhrifamesti þáttur alþjóðaþjónustu Rótarýhreyfingarinnar eru nemendaskipti sem standa til boða börnum rótarýfélaga jafnt sem öðrum.

Ávinningur nemendaskipta er ótvíræður því nemandinn:

  • lærir tungumál,
  • hann kynnist menningu framandi þjóða,
  • öðlast reynslu daglegs lífs í framandi landi,
  • stofnar til vináttu við fjölskyldur og skólafélaga,
  • kynnist hugsjón Rótarý í verki,
  • er þátttakandi í starfi rótarýklúbbs
  • og er rótarýfélagi framtíðarinnar.

Góður skiptinemi er góð landkynning og framlag til friðar í heiminum.

Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar hefur tekið virkan þátt í starfinu með því að taka á móti skiptinemum og styðja íslensk ungmenni til skiptnemadvalar erlendis og hefur gert það frá 1982. Einnig hafa íslensk ungmenni á vegum klúbbsins sótt sumarbúðir Rótarý heim.

Fyrsti skiptineminn sem fór á vegum klúbbsins var Guðmundur Karl Jónsson sem var skiptinemi í Bandaríkjunum 1982-1983. Klúbburinn hefur tekið á móti alls 26 skiptinemum víðsvegar að úr heiminum. Á móti hafa verið sendir 34 íslenskir skiptinemar á vegum klúbbsins. Nemendur dvelja eitt skólaár í dvalarlandinu hjá fjölskyldum rótarýfélaga eða öðrum. Skiptinemar þurfa að hafa náð sextán ára aldri og ekki vera eldri en átján og hálfs árs þann 1. september árið sem dvölin hefst.

Á engan er hallað þótt nafn Jóns Ásgeirs Jónssonar sé nefnt í sömu andrá og fjallað er um þennan mikilvæga þátt í rótarýstarfinu. Jón Ásgeir starfaði í æskulýðsnefnd umdæmisins af miklum eldhug og var í forystu þar um langt árabil. Hugsjónastarf Jóns Ásgeirs hafði mikil áhrif í hans eigin klúbbi, Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar sem hefur staðið sig mjög vel í gegnum árin í starfi er lýtur að skiptinemum.