Upplýsingaskilti með merkingu gönguleiða í upplandi Hafnarfjarðar

fimmtudagur, 19. júlí 2012

JPH

Þann 19. júlí 2012 færði Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar Hafnarfjarðarbæ tvö ný upplýsingaskilti að gjöf. Skiltin sýna helstu gönguleiðir í upplandi Hafnarfjarðar og hvernig hægt er að nálgast þær gangandi úr miðbænum.

Á kortinu eru þrjár hringleiðir af mismunandi lengd:

  • 6 km hringur um höfðana sunnan Hvaleyrarvatns,
  • 10 km hringur frá Kaldárbotnum um Undirhlíðar, Helgafell og Valaból,
  • rúmlega 20 km hringur frá miðbæ Hafnarfjarðar um Ástjörn og Ásfjall, meðfram hraunjöðrum sunnan höfðanna að Kaldárseli og Kaldárbotnum og þaðan til baka eftir Selvogsgötu meðfram jaðri Gráhelluhrauns og Stekkjarhrauns, niður með læknum og áfram niður á strandstíg.

Rótarýklúbburinn lét setja upp upplýsingaskilti við Kaldárbotna í sumarbyrjun 2010 og nú bættust tvö ný við, annað við Hvaleyrarvatn og hitt við strandstíginn. Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, tók við skiltunum fyrir hönd bæjarins og afhenti Steingrímur Guðjónsson, forseti Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar, þau formlega.


Frá afhendingu skiltanna.