Á árunum 2023 til 2025 stóð Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar fyrir uppsetningu bekkja í upplandi Hafnarfjarðar. Forsetar klúbbsins á þessum árum voru Ingvar Geirsson, Þórdís Bjarnadóttir og Magnús Ægir Magnússon.
Á fundi í rótarýlundi klúbbsins 26. júní 2025 afhenti Ingvar, sem hóf þetta verkefni á forsetatíð sinni, Valdimari Víðissyni, bæjarstjóra Hafnarfjarðar, fjóra bekki til viðbótar við þá sex sem afhentir voru tveimur árum áður. Bekkirnir standa allir við stíginn sem liggur frá hesthúsahverfinu upp í Kaldársel og er hluti af hinum svokallaða Græna trefli. Sérstakar þakkir voru færðar þeim félögum sem hafa lagt fram vinnu við verkefnið.
Valdimar bæjarstjóri þakkaði fyrir hönd bæjarbúa þetta góða framtak og sagði dýrmætt fyrir Hafnfirðinga að eiga klúbb eins og Rótarý, sem leggi sitt af mörkum til samfélagsmála.
Magnús Ægir forseti 2025-2026, Þórdís forseti 2024-2025, Ingvar forseti 2023-2024 og Valdimar bæjarstjóri