Skiptinemastarf Rkl. Hafnarfjarðar

föstudagur, 9. mars 2018

gg

Einn áhrifamesti þáttur alþjóðaþjónustu Rótarýhreyfingarinnar eru nemendaskipti sem standa til boða börnum rótarýfélaga jafnt sem öðrum.
Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar sendir að jafnaði annað hvert ár út einn skiptinema til ár dvalar og tekur á móti öðrum.    

Ávinningur nemendaskipta er ótvíræður því nemandinn:

lærir tungumál, hann kynnist menningu framandi þjóða, öðlast reynslu daglegs lífs í framandi landi, stofnar til vináttu við fjölskyldur og skólafélaga, kynnist hugsjón Rótarý í verki, er þátttakandi í starfi rótarýklúbbs og er rótarýfélagi framtíðarinnar. Góður skiptinemi er góð landkynning og framlag til friðar í heiminum.   Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar hefur tekið virkan þátt í starfinu með því að taka á móti skiptinemum og styðja íslensk ungmenni til skiptnemadvalar erlendis og hefur gert það frá 1982. Einnig hafa íslensk ungmenni á vegum klúbbsins sótt sumarbúðir Rótarý heim.