Eitt stærsta og umfangsmesta verkefni sem Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar hefur ráðist í er bygging heimilis fyrir munaðarlaus börn fórnarlamba alnæmis í fátækrahverfi borgarinnar Kimberley í Suður-Afríku. Gunnhildur Sigurðardóttir, félagi í RH, kynntist aðstæðum barnanna þegar hún starfaði á vegum Rauða kross Íslands við umönnun alnæmissjúkra í borginni á árunum 2003 og 2004. Árið 2006 ákváðu félagar í RH og Rótarýklúbbi Suður-Kimberley að sameinast um verkefnið og síðar sama ár bættist Rótarýklúbburinn Reykjavík Austurbær í hópinn.
Bæði Rótarýumdæmið á Íslandi og Alþjóða Rótarýsjóðurinn, The Rotary Foundation, styrktu verkefnið, sem var fyrsta samstarfsverkefni íslenskra klúbba af þessu tagi með TRF. Má ætla að byggingarkostnaðurinn hafi verið 190.000–195.000 USD. Ýmsir félagar í RH lögðu verkefninu lið umfram framlög klúbbsins, en Guðmundur Steinar Jónsson lagði til sérstaklega ríflegt framlag sem nam meira en helmingi heildarkostnaðarins og flýtti framkvæmdum verulega.
Byggingu heimilisins lauk árið 2008 og vígslan fór fram með pompi og prakt þann 20. október sama ár. Um er að ræða 470 fermetra múrsteinsbyggingar með fjórum stofum, eldhúsbyggingu, sjúkraherbergi, geymslu, móttöku og hreinlætisaðstöðu. Þar rekur sjálfseignarstofnun kvenna í hverfinu dagheimili fyrir um 200 börn á aldrinum 6 mánaða til 6 ára. Börnin hafa misst foreldra sína úr alnæmi og sum þeirra eru sjálf smituð. Aðstaða þeirra hefur gjörbreyst frá þeim ömurlegu bárujárnsskúrum sem þau bjuggu áður í. Verkefnið hefur vakið verðskuldaða athygli bæði hér heima og erlendis.