Rótarýklúbbur Hafnarfjarðar, í samstarfi við Rio Tinto á Íslandi, verkfræðistofuna Mannvit og fleiri velunnara, stóð fyrir hönnun og uppsetningu nýrrar útsýnisskífu á toppi Helgafells.
Fimmtudaginn 13. júní 2019 fór fram formleg vígsla útsýnisskífunnar að viðstöddu fjölmenni. Forseti klúbbsins, Guðbjartur Einarsson, stýrði athöfninni. Rósa Guðbjartsdóttir, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, og Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, voru meðal gesta ásamt fjölmörgum öðrum sem lögðu leið sína á fellið í tilefni dagsins.